|
|
23.08.2006 00:23:53 / siggan
Þá er komið að því....
Ég er flutt....
http://www.siggajona.bloggar.is
»
13.08.2006 18:07:52 / siggan
Oh.............
Hvernig er hægt að vera svona misheppnaður eins og ég er
á stundum ??
Ég semsagt var að
fá mér ADSL aftur. Fór niðrí
Símann á miðvikudag s.l. og þeir prófuðu tækið fyrir mig og það
virkaði vel þar.
Svo kom ég hérna heim
voða spennt sko, loksins að komast í samband við umheiminn á
ný.... En auðvitað, eins og ég vissi nú reyndar alveg
fyrirfram, þá gekk þetta ekki upp hjá mér. Komst ekki á
netið, reyndi "allt" og gafst svo upp á endanum og
hrindi í þjónustuverið í von um hjálp...
Þar svaraði ung dama á
hinni línunni og einhvernvegin í svona málum kýs ég frekar að tala
við karlmann..... En allavega, ég sagði henni frá þessu
og hún gat sé það hjá sér að ég var ekki tengd við símstöðina, það
væri greinilega bilun e-h staðar og blablabla.... Var
ekki alveg að nenna að taka eftir því sem hún sagði...
Ég hringdi svo strax á
fimmtud.morgun og ítrekaði þetta, og ég var greinilega
eitthvað óþolinmóð því hann sagði að þeir tækju sér 3 virka daga í
svona bilanir. Ég fór í fýlu, löngu orðin gráhærð og beið
fram á föstudag. Þá hrindi ég aftur  
Hef líklegast flokkast undir "pirrandi
kúnna" Fékk engin svör þannig að ég sagði
við gaurinn sem ég var að tala við, ''sko ég er nú orðin
svoltið leið á því að mér sé sagt að bíða! Ég hef nú áður
lent í svona veseni með þetta hjá ykkur og ef þetta verður ekki
komið í lag strax eftir helgi þá skipti ég sko um
símafyrirtæki!! Alveg crazy Og spurði hann
líka hvernig það væri að senda kannski mann með sérkunnáttu heim
til mín og athuga hvort vandamálið væri ekki bara hér, í tölvunni
minni..... Nei það var ekki nauðsynlegt í svona
tilfelli.
 
"(#(%&/#("/#&!/"(/
Í gærkvöldi komu svo
Gunni og Silla til mín og við grilluðum lax, Gunni
greyið er að vinna hjá símanum og ég lét hann heyra það hvað ég
væri brjál......
Hann fór eitthvað að gera í tölvunni og ég sagði voða góð með
mig ''Gunni minn ég er búin að reyna þetta allt....  
Mínútu seinna var ég komin með
netið    
Já Gunni minn þú ert snilli....
En vá hvað það er nú gott
að geta farið að spjalla viðLísu og auðvitað fleiri á netinu og
svona Og nú fer ég að blogga oftar og svona
Sé að fólk er greinilega ekkert að koma hérna
inn lengur. Kannski á enginn eftir að sjá þetta?
Eða hvað ?     
Já við Esther og Gunni fórum í Ásbyrgi föstudaginn um
Versló. Shhiiii hvað það var gaman!!
Hef aldrei upplifað svona stemmingu eins og þarna.
Vorum komin frekar snemma á staðinn, tjölduðum, bjuggum um okkur,
ég og Gunni á sitthvorri einbreiðri vindsænginni og Esther á svona
ógó þunnri tjalddýnu í miðjunni greyið, en það skipti engu, hún
svaf hvort sem er úti..................
Og Gunni var að vakna þegar ég var að fara að sofa þannig að hún
hefði svosum getað fengið dýnuna hans...... en neiiii.....
Hún vingaðist við fáeinar kóngulær frekar... 
Tónleikarnir voru svooo mikil schnilld! Var dáleidd
sko... Hefðu ekki getað valið flottari stað!
Hmmm.... ætti ég að sýna ykkur nokkrar myndir...
???
Já ok
nokkrar............... 
Þetta er...... heimsins basta flugnanet! Fólki fannst ég
nú held ég samt hálf halló... 

Esther, ég og Auður....

Það síðasta sem ég heyrði fyrir þetta var "Passaðu þig á
hundinu!!" 

Aðalgellan sko. Að róla í Ásbyrgi.
Herðu..... ef eitthvað hefur klikkað þá ætla ég að
segja....
ÞIÐ sem fenguð EKKI sms frá mér, þá er ég
komin aftur með gamla númerið mitt.....
Ef þú mannst það ekki þá bara óheppin......

Töff?
»
31.07.2006 16:47:32 / siggan
Vá ég tek að mér titilinn lélegasti
bloggari í heimi ! 
En svona er þetta bara. Ég hef ekki nennt að blogga því það eru
nú allir uppteknir á sumrin og svona, ég þ.m.t... En ég ákvað að
skella inn einu svona fyrir versló!
Þessa dagana einkennist líf mitt af iðjuleysi og einmannaleika!
Hehe eins og sum ykkar vitið þá er Elísabeth hjá pabba sínum og
viðbrigðin á einu heimili! Ég bara kann þetta ekki. Ef hún fer í
pössun þá er það alltaf af því að ég er að fara að gera eitthvað
ákveðið. En núna er hún hjá þeim, og ég er ekkert að gera neitt
sérstakt, nema nottla vinna. En jújú ég hef nú fundið mér eitt og
annað að gera. Fór t.d. á Pirates of the Caribbiean á
miðvikudagskvöldið síðasta og það á Powersýngu og váááá hvað ég
mæli með því ! Hún er svo geðveik og Jhonny er SVOOO
sexy!!
Fór svo á Sigurrós tónleikana á föskvöldið og það var geggjað
líka. Við Gunni mættum á svæðið um hálf átta, og löbbuðum upp að
Þverbrekkuvatni og veiddum til hálf tíu og löbbuðum svo niður aftur
og beint á tónleikana.
En ég horfði á tónleikana á Klumbrutúni í sjónvarpinu í
gærkvöldi og vá hvað þeir voru flottir! Sviðið geggjað, lýsingin
sjúklega flott og allt bara svoo flott. Hefði verið til í að vera
þarna ásamt þeim 15000 manns sem mættu!
En við Bogga skelltum okkur svo á Silent Hill í gærkvöldi og ég
ætla ekki að segja neitt um það hvernig mér fannst hún ´því ég er
ekki búinað gera það upp við mig ennþá. En ég hefði pottþett ekki
fílað hana ef ég hefði ekki verið búin að spila tölvuleikinn!
Æii Lísan mín er bara farin til London! Miss you baby! En við
Esther stefnum á heimsókn í Október, vjúúú það verður
gaaamaaan!!
Herðu ! Hvað ætliði þið að gera um næstu
helgi???
Ég ætla í Ásbyrgi á föstudag og gista fram á Lau. Held ég nenni
ekkert að gera á lau.kvöld en svo verður eitthvað kíkkað á sun.kv.
En Sigurrós er einmitt að spila í ásbyrgi líka.
Æi endilega leyfið mér að heyra í ykkur, hvað er planið og svona

Love you like always.....
»
06.07.2006 17:35:18 / siggan

Bara að segja ykkur
að þið eruð YNDI!!
»
29.06.2006 12:41:10 / siggan
Hæ hó........

Þetta er ekki skemmtilegur dagur í dag!! Þetta er síðastidagurinn
hennar Lísu hérna á Akureyri í laaaangan tíma!  
Hún fer í fyrramálið þessi elska og er að flytja til London, eins
og ég hef örugglega sagt hundraðsinnumáður....
Æii.... maður verður eitthvað svo dapur, og fer að hugsa um allt
sem við hefðu getað gert í sumar    Haldið grillpartý, farið í
útilegu, farið í roadtrip og svona ýmislegt gaman! En svo ef hún
væri ekki að fara þá hefðum við pottþétt ekki gert neitt af þessu.
Hehe.... það er nú bara einu sinni þannig að þó maður viti innst
inni hversu vænt manni þykir um einhvern þá finnur maður það alltaf
mest á svona stundum.
Allavega......
Elsku Lísa!
Þú ert ein að yndislegustu manneskjum sem ég hef
kynnst. Ég er ekki búin að þekkja þig lengi en er svooo ánægð að
hafa kynnst þér og er svo ánægð að fá að fylgjast með þér dafna í
útlandinu! Þú verður að lofa að vera dugleg að blogga!
Maður sér líka bara hversu mikill gullmoli þú
ert því það líkar öllum vel við þig, og þú er svo góð við alla! Og
Elísabeth dýrkar þig. Alltaf að spurja, hvar er Lísa, og svo er
dyrabjallan hringir þá segir hún alltaf; Anna og Lísa komnar!! Æi
vildi að þú hefðir hitt hana áður en þú ferð út. En langaði bara að
segja, eins og ég hef sagt áður að ég á eftir að sakna þín
svakalega mikið og það á eftir að verða mjöög tómlegt á djamminu
hér eftir. Þangað til um jólin! Vá ég er strax farin að hlakka til
þegar þú kemur aftur!
Gangi þér allt rosalega vel í London og njóttu
lífsins í botn sætust!
Hlakka til að hitta þig í kvöld
    
Hey HannaZigga frænka er alveg að fara að koma
norður, jiii hvað ég hlakka tiiil.... Ætla að kynna hana fyrir
yndislegu stelpunum, Önnu og Esther. Því Lísa verður jú farin.
En ég ætla að sýna Hönnu alla sætu strákana! Hmmm já þá
þyrfti ég líklega að fljúga með hana til Columbiu eða eitthvað,
  en hey Addý var að segja það það væru ansi margir sætir í
Svíþjóð, það ætti að duga! 
og ég ætla með'enni í sund og eitthvað svona gaman! Þá veistu það
Hanna mín Hlakka geggjað til að sjá þig !!
Svo er mín ástkæra systir að koma norður næsta þriðjudag!! Oh ég
elska sumrin!!
Oh aðfaranótt miðvikudasins var nú ekki skemmtileg hjá okkur mæðgum
og Gunna! Elísabeth vaknaði um kl 03:00 og þurfti að pissa. Við
fórum fram og hún pissaði ekkert mál með það! Við vorum svo búnar
að liggja inní rúmi í 10mín þegar hún rekur upp þvílíkt öskur og
byrjar að hágráta og nötra og skjálfa! Ég hélt fyrst að hún væri
bara með martröð en sá svo fljótt að þetta var ekki alveg eðlilegt!
hún tók svo í hendina á mér og lagði hana yfir magann þar sem
botnlanginn er. Og þá fór mig að gruna að hún væri bara að fá
botnlangabólgu! Ég hringdi strax í Gunna og það veit guð hvað ég er
þakklát fyrir það hvað Elísabeth á góðan pabba! Hann stökk af stað
og var komin 5 mín síðar. En lætin í Elísabeth voru þvílík að hún
vakti Hóffu í gegnum símann í næsta herbergi hjá þeim mæðginum
þegar ég hringdi í Gunna og ég var farin að ýminda mér að þetta
væri einhver bráðabotnlangabólga eða eitthvað hræðilegt! En við
fórum uppeftir og hún róaðist fljótt og eftir þetta kast bar ekkert
meira á neinu. En það var tekið þvag og við vorum send heim en
áttum svo að mæta morguninn eftir í blóðrufu og gerðum það. Gunni
var með okkur allann tímann og það var rosa gott að hafa hann með!
Hann vildi auðvitað lika vera með litlu stelpunni sinni
skiljanlega! En það er allt í góðu með blóðprufurnar og þvagið.
Engar sýkingar eða merki um botnlangabólgu eða neitt, þannig að það
var mikill léttir! Hef aldrei upplifað jafnavonda tilfininngu eins
og það að halda að það sé eitthvað alvarlegt að dóttur minni.
Öskrin voru þvílík..
Jæja Vá hvað það er geggjað veður úti ! Samt nenni ég aldrei útí
Kjarna að skokka! Fer alltaf á hlaupabrettið hennar Addýjar í
staðin. En er farin að fara á hverjum degi. Jiii hvað það er gott.
En mér finnst bara betra að hlaupa á brettinu en í mölinni. Uppá
fæturna mína sko. Ekki það að þeir séu eitthvað viðkvæmir samt.
bara einhvernveginn betra! Náðuði þessu? Betra.......... Vá hvað ég
er farin að tala í hringi! Er einmitt hérna hjá mágkonu minni og
brettið er farið að iða og kallar á mig!!      
Ég er ekkert crazy neinei......
Oh var að tala við Auði systur aðan og hún er útí Danaveldi og
bíður nú eftir að tónleikasvæðið verði opnað í dag! Já hún er á
Hróaskeldu! Vá hvað ég væri til í að vera með henni !!
Hey eruði að grínast með það hvað ég hlakka til að sjá Pirates og
the Caribbean II,
Úff......
»
23.06.2006 13:27:30 / siggan
»
14.06.2006 14:09:32 / siggan

Haba haba...........................
* Vinnan mín er æði!
* Veðrið er æði!
* Fólk sem kann ekki að keyra á hringtorgi er EKKI æði!
* ÞIÐ eruð ÆÐI!!!
Sorry sorry hvað það er langt síðan ég bloggaði! Ég skammast mín
helling 
Ég er byrjuð að vinna og líkar það rosa vel! Gengur líka mjög
vel hjá mér held ég bara, og vona að heimilisfólkið á heimilunum
sem ég er á sé ánægt. Ég fer semst inn á 8 heimili og hjálpa
fötluðum. Það er mjög gefandi! Elísabeth hefur komið með mér 3svar
og er hún rosa dugleg. Og mér finnst gaman að hún kynnist svona
umhverfi svona ung.
Jæja, stuð var nú um helgina. Ég var að vinna og kíkti svo útá
laugardagskvöldið með skvísunum, og má nú alveg deila um það hversu
gaman það var Ekki misskilja mig, Skvísur þið eruð Æði! En biðin
eftir taxanumvar ekki æði, gosbjór með mold í er ekki æði (takk
Esther) Haha , Dansgólfið á Kaffi ak er ekki æði með svona 250
manns öllum vel í þvi.
Og slagmál milli stráka á troðnu dansgólfi er EKKI töff!!
Slagsmál eru aldrei töff!
En hins vegar hlakka ég rosa til 17 júní! Hún LÍSA! Elskan er að
útskrifast og ætlum við vinkonurnar að fara til hennar og fagna með
henni!! Og að sjálfsögðu verður kíkt út og fylgst með þessari elsku
koma askvaðandi niðrá torg á miðnætti með hvítan koll! Jiii....
spenna spenna!
En einnig er hún Hrefna Hrund frænka að fara að útskrifast og
ætla ég auðvitað að reyna að koma auga á hana niðrá torgi líka!!
Þær eru svo fallegar þessar elskur!
En ég ætla EKKI að djamma á sextándanum! Ekki biðja mig að
koma með ykkur út!! hehe..... æi meika nú ekki tvö kvöld í röð
sko!
Hey vitiði hvað kellan er dugleg! Farin að fara út að
skokka fyrir hádegi á hverjum degi síðan á mánudag!! haha 3 dagar!
Og ég ætla ekkert að segja um það hvort fyrir hádegið mitt er kl
08:00 eða 11:00. hehehe..... En ég er allavega í svaka átaki og
ætla sko að standa mig. Þannig að ég vil ekki fá matarboð í
hamborgara eða eitthvað þvíumlíkt thíhí............ Svoltið
verið að taka sig á í sjálfsstjórn hérna! Veitir nokkuð af ??
Neibb........
Jæja ég vildi allavega bara láta vita af mér, held ég bulli
bara, var að koma úr 20mín hörkulabbi á hlaupabretti mágkonunnar
Og er ógó sveitt.......... Er farin í sturtu!
Lov jú, and kvitta elskurnar! Siggan
kveður að sinni!! :* :* :* :* :* :* :* :* :* :*
Smá fantasíur í gangi hérna 
»
01.06.2006 01:17:31 / siggan
»
22.05.2006 20:54:13 / siggan
Jæja þá er komið að því!
Á laugardaginn úskrifaðist mín ástkæra systir sem sjúkraliði!
Enn og aftur " Til hamingju elsku besta
systir mín!"
Ekkert smá sætar vinkonur! Elín Hulda, Auður og Agga!
Ég
ætla líka að óska Gunna elskunni til hamingju með daginn!!
En hann er 21 í dag! Þó ég héldi alltaf að hann væri miklu eldri en
ég
Jæja við mæðgur flugum svo norður kl fimm, en vorum næstum búnar að
missa af vélinni því það koma tímar þar sem ég hef ekkert tímaskyn
!
En þetta rétt slapp ! Elíabeth fór beint til pabba síns og ég beint
heim í sturtu, og svo bara að taka mig til fyrir kvöldið!
Esther og Kolla komu svo til mín og fljótt eftir þeim komu Gunni,
Gísli og Matti.
seinna um kvöldið komu svo Anna, Lísa og stelpa með Lísu sem ég GET
EKKI munað hvað heitir!! Sorry, en rosa sæt stelpa með hvítan koll
því hún var einmitt að útskrifast! 
Anyways.... það var Svakalegt stuð hjá okkur og gekk ýmislegt
skemmtilegt á áður en haldið var svo niður í bæ.
Hér er brot af því besta.....
Ég og hún Kolla mín!
Aldrei nóg af okkur!
Jább við eigum sex svona myndir af hvort öðru því við vorum að
reyna að ná að mynda flassið hjá hinu!! Gunni náði samt mínu flassi
um kvöldið! Það er flott mynd!
Gunni afmælisstrákur að ná mínu flassi!(Jú það var víst stuð hjá
okkur! Fórum bara óhefðbundnar leiðir!) hehe....
Gísli: Oh af hverju á ég ekki svona myndavél!
Lísa megabeib! Hö hömm.... Lísa á að kjósa X... hvað ???
hahaha!!!
Anna sæta og Esther alveg iðandi því hana langaði svo að snúa sér á
stólnum sem hún sat á!!
Jájá ekkert mál! Matti reddar því!
Og hér getið þið séð þá atburðarrás.............
Sjáiði hvað hún er spennt!!!
Matti jók hraðann! Orðinn þokkalega spenntur líka!!!
Þarna veit ég ekki hvað gerðist nema svo heyrðist öskur og
BúMM!!!
Esther steinlá!!!
Matti er nátturlega algjör herramaður og hjálpaði okkar konu á
fætur!!
Gísli mátti náttúrlega ekki vera minni herramaður og fór að kenna
henni allt um það hvernig maður á að halda jafnvægi!! Takið eftir
því hvað Esther er einbeitt!!
Hehe kvöldið var
snilld og Stelpur:
Þið euð allar æðislegar og
Takk fyrir skemmtunina!!!
Lov jú!!!!
Munið svo að kvitta...........
      
»
18.05.2006 22:20:02 / siggan
Til hamingju
Finnland!!!!!!!!!!!!!!
Hey people!! Kem með nýtt blogg mjööög fljótlega þar
sem þið getið fengið að sjá örlítið brot úr partýinu á
laugardagskvöldið.
P.s. VEIT EINHVER um betri myndasíðu en
picturetrail??
Er að reyna að setja
myndir þar inn og það kemur alltaf " The document contains no data" og
það er sko ekki eins og ég viti hvað það þýðir ! Þannig að um
leið og ég finn betri myndasíðu get ég komið með bloggið
»
16.05.2006 12:38:57 / siggan
»
11.05.2006 10:20:20 / siggan
Hmm Kannski kominn tími á svona eins og eitt
stykki blogg?   
Ég hef ekki frá
neinu að segja!! það er bara svo óþolandi einfalt
!
Þannig að ég ætla að kreista út þetta litla sem ég hef frá að
segja!!  
Inní þessu litla
felst reyndar einn stórviðburður! Því eins og þið vitið átti
Elísabeth mín afmæli á máudaginn! Við héldum uppá það á sunnudaginn
og komu nokkrir velvaldir í heimsókn  Dúllan, eða á maður að
fara að segja pæjan, hún er jú orðin þriggja sko! Já hún fékk fullt
af fötum og töskum, fékk skó, pening, mynd til að hengja uppá vegg,
af englum og fær svo hjól frá okkur foreldrunum núna fljótlega.
Update!

Jább við fórum sko áðan og keyptum hjól og hjálm! Ekkert smá
gaman!!
Prinsessan klár fyrir partýið
Elísabeth og Hrannar föðurbróðir
TAKK FYRIR KVEÐJURNAR OG ALLT !!
 
Hmm annað! Alveg get ég dottið inní sveitastörfin! Ekki fann ég
fyrir neinu sem heillaði mig sérstaklega við sveitina svona c.a.
frá 14-20 1/2 árs aldurs. Hehe en hey er það ekki bara normalt
þegar maður gengur í gengum svona svaka gelgjuskeið eins og ég !!
Ætla að vona að þetta sá þá merki um það að maður sé alveg að
hrista það af sér  Neehhh... segi svona.. Löööngu búin að því

Anyways... þá eru kindurnar hennar mömmu alveg að unga út á fullu
núna, eða það er að segja þegar ég er ekki í heimsókn því ef ég lít
við þá er bara saumað fyrir og haldið í sér takk fyrir!!! Alveg
merkilegar þessar rollur! Ég mæti á svæðið og stoppa kannski í tvo
daga, tilbúin í sloppnum með hárnetið og stækkunarglerið og ekkert
gerist! Móðgun alveg frá rótum! Ekki eins og ég sé ekki góð í að
taka svona á móti, þó svo að eitt kettlingsskott hafi fengið að
fjúka..... bara óheppinn hann(kettlingurinn), hann vildi ekki koma
út!! 

Eina lambið sem ég hef fengið að taka á móti! Enda langflottastur
Jæja krúttin mín ég er farin að fá mér harðfisk frá Darra!
Er búin að gera nýja skoðanakönnun!!!
Fer svo að
steinhætta þessu bloggstandi ef þið farið ekki að skilja eftir
ykkur fótspor!!
»
08.05.2006 12:53:11 / siggan
Fallegasta prinsessan í öllum
heiminum er orðin 3 ára !
Til hamingju með
afmælið
elsku stelpan
mín!
»
02.05.2006 23:58:36 / siggan
Til minningar um Lilju okkar sem lést að morgni 1.mai eftir langa
baráttu við illvígan sjúkdóm. Hún barðist hetjulega.
Lilja var yndisleg stelpa sem vildi öllum vel.
Mér finnst þetta ljóð lýsa henni vel, því kærleikann vantaði ekki
hjá henni.
Kærleikur er, hvert góðverk sem þú vinnur.
Kærleikur, er hvert bros sem þú gefur.
Kærleikur, er að faðma þann sem grætur.
Kærleikur, er að hugga þann sem syrgir.
Kærleikur, er að gefa þeim sem þarfnast.
Kærleikur, er umhyggja fyrir öllu sem lifir.
Kærleikur, er að biðja fyrir öllum, góðum sem slæmum.
Kærleikur, er að lifa sáttur við sjálfan sig og aðra.
Kærleikur, er að dæma ekki.
Kærleikur, er ljósið sem býr í hjarta þínu.
Þín verður sárt saknað elsku Lilja.
 Hvíl í
friði.
»
29.04.2006 10:54:37 / siggan
Jæja,
nýjar(gamlar) myndir af Elísabeth eru neðst til vinstri!
Þar stendur Elísbeth - Myndir og undir því koma svo nánari
útskýringar!
Esther helduru að þú skiljir
Góðan dag!
Hann er reyndar ekki jafn góður, veðurlega séð eins og dagurinn í
gær! Það var svooo æðislegt veður! Jii hvað ég dýrka hita! Vil
helst hafa þetta bara þannig að maður þarf ekkert að vera að klæða
sig neitt nema bara í eitthvað svona voða létt. Það er svo
þægilegt, svona eins og útá Spáni.
Reyndar fann ég svoltið fyrir því þarna úti(á spáni) þegar leið á,
hvað ég saknaði ferska loftsins! Þannig að líklega er best að hafa
þetta bara svoltið misjafnt eftir dögum
Ég er sko geðveikt búin að vera að þrjóskast
við að koma með nýja færslu! Ætlaði ekki að gera það fyrr en ég
væri búin að setja inn myndirnar sem ég er að fara að setja inn. En
það er nú meira en að segja það. Ég er nebbla með fulla tölvu af
myndum af prinsessunni minni og þær eru hvergi nema í þessari
tölvu. Og ég veit að það er fullt af frænkum og ein amma  sem
hefðu gaman af því að sjá þær  Ég reyndar get ekki sett inn nema
brot af þeim, þær eru svo margar. En allavega, þá er það allt í
vinnslu.
ÞEGAR ég hef lokið því af, þá fer ég að setja inn allskonar myndir,
eins og úr ammlinu þínu Esther og svona
Jæja það eru nú svosum engin stórtíðindi úr
Meló. Jú ég er komin með vinnu, í sumar. Get ekki beðið ! Er að
fara að vinna á Grenivík þar sem ég var að vinna þarsíðast sumar,
en þetta sumar verð ég líklegast með unglingavinnuna sem verður
rosa fínt held ég.
Hvort ég keyri á milli eða hvernig það verður er ennþá óráðið. Allt
eitthvað sem kemur í ljós  En ég er sko ekkert smá hamingjusöm
með að vera að vinna úti í sumar! Er ekki þessi innitýpa þegar
sólin skartar sínu fegursta
ARG!!! Það er svo erfitt að vera ég!! Vitiði
hvað ég var að enda við að gera !
OOhhh.... Elísabeth kom til mín og sagði, "mamma komdu! Sjáðu
fluguna!! Og við fórum að skoða og þetta var þá svona padda, og ég
fann eitthvað blað til að setja hana á og henda henni svo út. Hún
fór uppá blaðið eins og ekkert væri, og ég setti hana út , en nei,
það er svoltið hvasst þannig að alltí einu fékk ég það á
tilfinninguna að hún mundi fjúka í hárið á mér eða eitthvað þannig
að ég bara sleppti blaðinu! Og það náttúrlega fauk út í buskann með
því sama!! Þetta var blað sem ég fékk sent frá símanum með
notendanafni og leyninúmeri að þjónustuvefnum hjá þeim! OH!!! Þoli
ekki lengur þessa pödduhræðslu! Eins og í gær þá voru ég og Gunni
eitthvað að rúnta, og ég er með svona rifu á glugganum. Svo flýgur
framhjá okkur þessi svaka hlussubýfluga og ég baðaði höndunum útum
allt því ég hélt auðvitað að hún væri að fara að gera innrás inn í
bílinn!!!  Óþolandiiii.............
Jæja nóg komið í bili. Við mæðgur erum að
fara í sveitina að skoða litlu lömbin tvö sem fæddust þar í síðustu
viku! Hlakka svo til að sjá viðbrögðin hjá Elísabeth. Hún hefur að
sjálfsögðu sé lömb áður en hún er búin að stækka svo mikið síðan
síðasta vor auðvitað þannig að það verður öðruvísi núna held ég. Og
auðvitað verður myndavélin með í för
Og munið: Fullt fullt af myndum á leiðinni
Eitt að lokum, til að sjá hvað þið getið !
HVER á þessi augu??
Kveð í bili, Siggan, pödduskræfa með
meiru!
»
Síður: 1 2 3
|
|